föstudagur, maí 12, 2006

jæja þá er maður byrjaður í sumar vinnunni. Búin að vinna í þrjá daga núna og búin að takast að sletta á mig vel af þessari hvítu málingu á þeim tíma :) Ég er semsagt að vinna í sömu vinnu og ég var að vinna síðasta sumar, í umferðadeild hjá Gatnamálastjóra. Dagurinn í gær var mjög þægilegur þar sem að veðurguðirnir virtust ekki alveg geta ákveðið sig hvort þeir vildu hafa sól eða rigningu, og þess vegna vorumvið alltaf á leiðinni að fara að mála en gátum samt aldrei byrjað vegna þess að allt var enþá blaut eftir síðasta rigningaskúr, svo þegaraðallt var alvegað verða þurrt þá kom önnur demmba, og svona gékk þetta koll af kolli allaan daginn...þannig að það sem ég gerði í vinnuni í gær var aðalega að sofa.... :) En í dag var hinsvegar glampandi sólskyn þannig að í dag máluðum við allan bæinn gulan ;)

og smá gleðifréttir Jeiii...ég komst inn í inntökuprófin í Svíþjóð í arkitektúr :) Prófin verða 12 og 13 júní. Það er samt ekki þar með sagt að ég sé komin inn í skólan. Það voru 760 mans sem sóttu um þetta árið (meðþví að senda inn heimaverkefni sem við fengum á netinu) og við vorum 380 aðmig minnir sem komumst áfram í inntökuprófið.Það er hinsvegar síðan bara tæplega helmingurinn af þeim sem taka inntökuprófið sem komast í skólann :/..... þannig að ég verð bara að gera mitt besta, vona að ég verði vel undirlögð á prófdögunum .... och holla tummarna ;)

.....

Eyrún Bloom @ 8:46 AM |

mánudagur, maí 08, 2006

hæ hæ
hmm er ekkert í besta skapinu í dag. Fékk bréf frá arkitektskólunum úti í danmörku áðan þar sem stóð að ég kæmist ekki í inntökupróf. Ég komst ekki heldur í viðtalið hérna heima þannig að sjálfsálitið hjá manni er farið langt niður fyrir mínu ....
...svo var ég líka að fréttaum enn aðra vinkonu mína sem komst í viðtal í LHI áðan og ég er auðvitað mjög ánægð fyrir hennar hönd og allt það en get samt ekki gert að því að það varð eginlegatil þess að mér leið enþá verr...

...en svona er þetta .. that´s life right ! Some you win, some you lose...í mínu til viki samt eginlega meira some you lose :/

En allavega nenni ekki að velta mér meira upp úr þessari sjálfsvorkun :) það er ekki eins og að það jálpi eitthvað hvort eð er. Semsagt síðast endaði ég á því að ég ættlaði að segja frá Tyrklandsferðalaginu mínu.

Ég fór semsagt með allri familíunni til Tyrklands um páskana. Það var mjög gaman . Þetta var 10 daga ferð og við vorum á fimm stjörnu hóteli með öllu sem því fylgir. Innifalið var einnig allur matur og allir drykkir á hótelinu (set myndir frá ferðinni inn fljótlega þar sem hægt er að sjá hótelið). Tveir af þessum 10 dögum fóru í það að liggja í sólbaði á sundlaugarbakkanum. Aðrir tveir í það að versla. og ein daginn fórum við út á svona seglskútu og eiddum deginum í að liggja þar í sólbaði eða að svamla í sjónum. Þeis dagar sem eftir eru fóru í það að ferðast um landið með rútu og skoða fullt af merkilegum stöðum. Við fórut.d og sáum fyrstu samfélög kristna manna í heiminum. Sem var mjög merkilegt þar sem að þær voru neðanjarðar. Vegna þess á þessum fyrstu árum kristninnar voru kristnir menn undir stöðugum ofsónum og urðu því að fluja neðanjarðar. Við fórum inn í eitt slíkt ,,þorp" sem var margar hæðir ofan í jörðina með göngum og ranghölum í allar áttir. Þar bjuggu á sínum tíma allt upp í 3000 mans !! Pælið í því að búa alltaf neðanjarðar og sjá aldrei sólarljós! Anyhow dagin eftir það fórum við svo og skoðuðum þorpin sem þeir byggðu eftir að þeir fluttu aftur upp áyfirborðið og það fyndna við þau voru að það var eginlega eins og þeir hefðu byggt alveg eins borg bara ofanjarðar. Þeis semsagt grófu öll húsin sín , kyrkjurnar og allt inn í fjöllin í kring. Þetta var alveg stórmerkilegt maður labbaði þarna inn í einhvern helli sem leit ósköp venjulegur utanfrá, en þegar að inn var komið stóðstu all í einu inni í hinni glæsilegustu kyrkju með útskeytum veggjum og lofti og ég veit ekki hvað og hvað.
Ein daginn fórum við líka að skoða borg sem hafði að hluta til sokkið þegar að einhver jarðskjálfti gékk þar yfir fyrir mörgum árum. Þegar aðbáturinn sem að við sigldum á sigldi inn í litla vík og stoppaði þar í smá stund svo að fólk gæti fengið sér sundsprett og svona, þá kom litill ísbátur og seldi okkur ís, það var ekkert smá fyndið og sniðug hugmynd, í staðin fyrir ísbíl eins og maður er vanur að sjá þá var þarna ísbátur hehe. Allavega svo sáum við líka eld sem kom beint upp úr jörðinni á mörgum stöðum í fjalshlíð einni og þessar eldtungur eru alltaf logandi og hafa verið það síðustu ég veit ekki milljónárinn !! Sagt er að fyrsti ólimpíueldurinn sé komin þaðan.

En jæja semsagt í einu og öllu frábær ferð, við gerðum auðvitað fullt af öðrum hlutum og sáum en ég held að þetta sé orðið alveg nó ! Ég verð eginlega að segja að ég dáist að þeim sem nenna að lesa þetta allt !! :)

Eyrún Bloom @ 10:14 AM |

mánudagur, apríl 24, 2006

jæja heilt ár og rúmlega það síðan að ég bloggaði síðastn! úpps...gelimdi mér smá
ættli ég reyni þá ekki að skrifa smá núna þó svo að allir séu sennilega löngu hættir að skoða þessa síðu! Allavega væri ég löngu hætt að skoða síðu sem ekkert hefur verið skrifað á í heilt ár!

En hvað hef ég verið að gera þá þetta síðasta ár ??

ég : Gékk inn í FBSR
keypti mér línuskauta (sem ég hef b.t.w aldrei notað)
vann hjá gatnamálastjóra (í mestu chiil vinnu ever !)
svaf út
fór á Þjóðhátíð
fór út að labba með hundinn minn
Fór á Wildernessnámskeið
lærði
seldi jólatré
var sölustjóri í flugeldasölunni hjá FBSR
sprengdi upp rakettur
fór til Þýskalands
djammaði í Hamborg
fór á Árshátíðina hjá FBSR
sótti um í skóla úti í Svíþjóð
átti afmæli
sótti um skóla úti í Danmörku
var veik
sótti um annan skóla úti í Svíþjóð
Fór til Tyrklands
borðaði páskaegg (mmm)
lá í sólbaði
skoðaði fornar minjar
fór í flugvél
og núna sitt ég hérna í vinnunni í sambíóunum sem að ég er b.t.w búin að segja upp. Fannst fimm og hálft á í þessu starfi alveg nóg !! :) Síðasta vaktin verður einhverntíman í mai. Þannig að ég þarf að fara að venja mig við að þurfa að fara að borga í bíó aftur ! :/

EN allaveg held að þetta sénóg í bili..segi seina nánar frá ferðinni til Tyrklands og öllu þessu umsóknarstússi

Eyrún Bloom @ 11:49 AM |

þriðjudagur, apríl 05, 2005

jæja svo að við vorum semsagt búin að plana heljarinnar páskaferð, fimmdaga gönguskíðaferð með viðkomu á fimm jöklum. En nei nei...það var ekki nóg af snjó á ISlandi ! Þannig að við urðum bara að hætta við allt saman ! Frekar fúlt...en það rætist nú reyndar samt ágætlega úr þessu. Í staðin fórum við nefnilega í ísklifur í Sólheimajökli, sem var ekkert smá gaman og gistum í tjöldum hjá Seljalandslaug í tvær nætur og gátum farið þar í pottin og haft það gott :)...komum svo í bæin á laugardeginum og grilluðum og kíktum aðeins út á lífið. Fórum svo á Sunnudeginum í klettklifur í Valshamri og kíktum svo aftur niður í 101 það kvöld.
Þetta áttu því í upphafi að vera mjög hardkore páskar en urðu bara mjög svo afslappaðir og chillaðir.....

Um síðustu helgi fór ég svo í tvö afmæli. Á föstudeginum hélt Heiður upp á 20 afmælið sitt með vinkonu sinni þó að það séu reyndar nokkrir mánuðir síðan að hún varð 20. Þær héldu það á prikinu og það var reyndar bara frekar svona chilluð stemming þar en mjög gaman samt..Páll Óskar var dj þar þetta kvöld og það var náttúrulega algjör snilld !
Á laugadeginum hélt svo Óli upp á 25 ára afmælið sitt. Hann hélt það heima hjá sér og bauð upp á grillaða hamborgara og bjór. Reyndar nó af bjór og öðru sterku víni og voru sumir kannski aðeins og duglegir við að hella í sig..host erna....enn annars var bara mjög gaman og að sjálfsögðu kíktum við aðeins niður í 101. Kvöldið endaði svo með því að einhver vinur Guðgeirs var svo vinnsamlegur að skutla okkur heim.

Á Sunnudaginn varð ég síðan mjög pirruð þegar ég komst að því að ég hafði týnt snirtiveksinu mínu kvöldið áður og það er enginn lítill peningur að týna því...sérstaklega pirrandi vegna þess að oftast er ég ekkert með snirtitöskuna með mér í bænum en akurat þetta kvöld var ég eitthvað mikið að drífa mig þegar að ég fór að heiman og hennti henni því bara í helu lagi ofan í veskið grrrrrrr Grrr

En nú er reiðin hinsvegar alveg runin af mér þar sem að leigubílstjórinn hringdi í Halldór í gær og spurði hvort að það gæti passað að einhver af okkur hefði týnt snirtitösku ..jeii jeii jeiii Too Happy 1

Í gær komst ég svo ekkert í skólan af því að ég var í leit að þarna Brasilíska manninum sem er tyndur. Við voum mætt niður í sveit um hálf sjö um morguninn og vorum komin á Stokseyri um ca 8 leitið en leitin fór fram á svæðinu þar í kring. Við leituðum allan dagin aðalega í mýrlendi gaman gaman he..nei ekkiert svo..en veðrið var þó gott og sólin skein á okkur nánast allan daginn. En þegar að það fór aftur að myrkva hafði leitin ekki en borið nein arangur og við fórum því heim.

Dagurinn í dag er hinsvegar búin að vera mjög fín þeir tveir kennarar sem að áttu að kenna mér eru báðir veikir þannig að ég þurfti bara ekkert að fara í skólan í dag..jeii jeii No School 1





Eyrún Bloom @ 5:08 AM |

fimmtudagur, mars 10, 2005

Jæja Diljá var að skamma mig fyrir hvað ég er ódugleg við að skrifa svo að.....

Um síðustu helgi fór ég í ferð með FBSR. Ferðinni var heitið í Landmannalaugar að þessu sinni.
Lagt var af stað um kl 8 á föstudagskvöldið og keyrðum við beinustu leiði að skálanum í Áfangagilimeð viðkomu í sjoppunni á Selfossi tilþess að fá sérsvona eins og eina pulsu :)
Þegar komið var í skálan sem be the way var enginn smá lúxus af vera bara keyrð upp að dyrum...venjulega þurfum við nú að hafa eitthvað meira fyrir þ´vi að komaokkur á áfangastað eins og að labba t.d svona síðustu kílómetrana.
En ekki í þetta sin...okkur var semsagt bara skutlað alvega upp að dyrum. Þetta var hin fínast skáli og við sofnuðum frekar fljótlega eftir að við komun enda planið að taka daginn snemma morguninn eftir.

Á laugardagsmorguninn vöknuðum við um kl 6: 30 og vorum lögðafstað í áttina að Landmannalaugum um 8 leitið.
Þetta var gönguskíðaferð þannig að við vorum öll með gönguskíði (augljóslega..) en sökum snjóleisis í byrjun ferðar urðum við að byrja á því að bera þau á bakinu....Ég var eitthvað að pirrast yfir því hvað þetta væri fúlt þarna í byrjun enda vissum við ekkert þá hversu langt væri í snjóin ef hann þá yfir höfðuð væri þarna. Allavega ég var semsagt eitthvað að tuða svona aðalega við sjálfa mig og þá var hann Óli svo sniðugur að benda mér á að við værum nú í rauninni að skíðaganga...því vað við værum með skíði og við vorum að ganga...HHA ! voða fyndið !
Já já allavega... loksins kom nú samt blessaður snjórinn.
Mér leist nú samt ekkert voða vel á þetta til að byrja með...framundan var glerhörð ís/snjórbrekka (að mér fannst allavega) og ég sem er nú ekki sú besta á gönguskíðum átti bara að fara að bruna þarna niður....Erna sem kann svosem kannski ekkert meira ...hún var nú samt ekkert að tvínóna við hlutina. Fara í pló...hvað er nú það....hún einfaldlega bara BRUNAÐI niður brekkuna á flegiferð...Erna þú ert klikkuð !
Jæja ég komst þetta nú samt líka á endanum og lét mig gossa svona síðasta spölin allaveg enda endaði ég líka á rassinum fyrir neðan brekkuna.´
Ég verðnú samt að segja að ég þakkaði fyrir að vera ekki í B1 ...þau voru nefnilegameð púlkur í eftirdragi og eins og að það sé ekki nógu erfit að koma sé niður á gönguskíðum þá er það hreint helvítið að koma sér niður á gönguskíðum með púlkur í eftirdragi.
Á endanum komust þó allir niður og ferðinni var haldið áfram.
Ég var smá stund að ná taktinum en þegar ég loksinns náði honum þá gat ekkert stoppað mig ;)
Þetta var annars mjög skemmtilegur dagur og við fengum æðislegt veður:)
Það sem eftir var dags gékk semsagt nánast allt áfallalaust fyrir sig fyri utan það að maður datt svo sem á bossan af og til...og reyndar í eitt skipti þá var ég að bruna niður eina brekkuna alveg ugsandi á fullu dan dan .... dan dan... (smá einkahúmor fyrir ykkur sem skiljið ekki afhverju)en tókst samt ekki alveg að halda balans og steyptist beint á andlitið...he...það fór alveg vel...en ekki það þægilegast í heimi samt !
Allavega um sjöleitið um kvöldið komum við svo loksins inn að skálanum í Landmannalaugum eftir 11 tíma göngu...sem er reyndar bara nokkuð vel af sér vikið miða við vegalengdina sem við fórum...en leiðin var um 45 kílómetra í loftlínu.
Það er alveg ótrúlegt hvað það er gott að komast inn í hlýan skálan fari í þurra sokka og bursta tennurnar eftir dvona dag...það eralgert himnaríki!.Maturinn smakkast líka alltf eins og þaðbesta sem þú hefur nokkursinni smakkað.!
Jæja eftir kvöldmat var svo komið að hinu árlega sprettlallahlaupi. Ykkur dettur sennilega öllum í hug hvað það er....og já það er rétt......þetta er semsagt keppni á milli strákanna þar sem að þeir spretta allir á berum bossanum út í heitu laugina sem hægt er að baða sig í þarna.
He...það var nú ekkert leiðinlega sjóna að horfa á eftir þeim spretta út í myrkrið;)
Erna var nú eitthvað að reyna að skora á okkur stelpurnar í mjólkurhristing en við vorum eitthvað tregartil...allaveg endaði það svo að við vorum allar í bikiní...skiljanlega ...
Það varekkert smá næs að sitja þarna í heitr lauginni í köldu næturfrostinu að vetri til og horfa á norðurljósin danda á himninum og þau voru sko alls ekki af verri kantinum þetta kvöldið.
Þegar við komum aftur upp í skála var svo drifið sig í hátinn enda átti aftur að taka daginn snemma.

Á sunnudaginn vöknuðum við svo aftur kl 6:30 og vorum lögðafstað kl 8. Það hafði greinilega verið aðeins meira frost þessa nótt því snjórinn var aðeins harðarinn en daginn áður. Veðrið var hinsvegar aftur eins og best var á kosið og þegar að líða fór á daginn þá þiðnaði snjórinn aðeins efst og færið varð alveg eðal.
Við komumst áfram á enn meiri hraða en daginn áður og vorum kominn á áfangastað um hádegið. Leðin var tæpir 20 kílómetrar í loftlínu.
Þegar að þangað var komið fór Doddi eitthvað að keyra redneck sem var nú frekar fyndin sjón að sjá...hann rétt náði upp fyrir stýrið og varla það :D
En besta tromp jelgarinnar var samt enn eftir . Við gengum nefnilega að keyra snjóbólinn og það var ekkert smá gaman :D
Ég bíð spennt eftir að gera það aftur !!!

Annars erum við að fara í sumarbústaðaferð um þessa helgi...kannski ég verði bara aftur duglega og skrifa hvernig hún fór í næstu viku.

yfir og út
Eyrún ;)

ps afsakið ef að það eru stafsetninga- og innsláttavillur hafði ekki tíma til að fara yfir :Þ

Eyrún Bloom @ 1:46 PM |

mánudagur, febrúar 21, 2005

Ég var að setja inn nokkrar myndir frá því í fyrra sumar....svona aðeins til þess að lýsa upp skammdegið :)
Það er nefnilega frekar niðurdrepandi að líta ut um gluggan og sjá þessa þoku sem ligguryfir öllu!
Á laugardaginn var partý fyrir hönunnardeildina í Sjálfstæðissalnum á Seltjarnarnesi. Það var mjög gaman og ég tók alveg fullt af myndum :) og þær eru nú örugglega margar annsi skrautlegar ! Reyni að setja þær inn einhverntíman á næstunni.
Annars er ég farinn að halda að ég sé að verða gömul !!.... Ég er farinn að vera svo slöpp á djamminu... bara farinn heim fyrir allar aldir.... varla komin niður í bæ og þá alveg ...jæja á maður ekki bara að fara að koma sér heim... og alltaf lofa ég mér og öðrum að næst standi ég mig nú betur...en það er samt bara ekkert að ganga ..usususus... ;) Knitting

Ég fór annars í gær að sjá Að eilífu sem er leikritið sem að Herranótt í MR sett upp að þessu sinni. Ég skemmti mér alveg konunglega og mæli með að sem flestir far að sjá þetta...það er reyndar bara ein sýning eftir held ég (á fimmtudaginn næsta). En allaveg Erna vinkona sem lék svona svoldið white trase móður fór náttúrulega alveg á kostum og ég held að það sé langt síðan að ég heai helgið svona mikið ! ROTFL


Jæja þá er best að fara að reyna að læra eitthvað......





Eyrún Bloom @ 12:00 AM |

föstudagur, febrúar 18, 2005

Jæja þá er maður aftur farin að downloda inn myndum á fullu !! Að þessu sinni varð fyrir valinu fullt af myndum úr ýmsum partýum hjá Dodda frá síðasliðnum vetri.
Eru margar þeirra ansi skrautlegar enda oftast annsi mikið um drykkju oft í þessum partýum
Chugger
Það er annars ekkert smá fallegt og gott veður úti í dag...þetta er svona ekta skíðaveður eins og er í ölpunum dag eftir dag.....mig langar ekkert smá á bretti......en ég ættla samt að láta það duga að fara í göngutúr í dag með henni Rakel vinkonu og hundunum okkar :) Dog 5
Á morgun ættla ég hinsvegar alveg klárlega á bretti !! :)
Ég get samt ekki verið allan daginn á bretti þar sem að það er n.k. Árshátíð hjá hönunnarbrautinni annað kvöld og við stelpurnar ættlum að hittast heima hjá Hrafnhildi á undan. Þannig að maður þarf að gera sig til og svona og svo var ég víst líka búin að lofa að baka eitthvað til þess að koma með til Hrafhildar þannig að ég þarf líka að hafa tíma fyrir það...

En semsagt á hverri stundu núna þá verða myndirnar búnar að downlodast þannig að ég ættla að fara að hætta þessu blaðri og ég segi bara góða skemmtun við að skoða myndirnar :)

ps...það er skylda að commenta ;)





Eyrún Bloom @ 7:19 AM |

Get awesome blog templates like this one from BlogSkins.com